Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðir um umhverfisvernd. Leitast verður við að þeir þroski með sér aukna virðingu fyrir náttúrunni og ábyrgðartilfinningu gagnvart sínu nánasta umhverfi. Kynnt verður hugtakið vistspor í þessu samhengi.
Fjallað er um náttúruauðlindir og orkugjafa Íslands.
Rætt um umhverfisvandamál sem við glímum við í heiminum í dag og hvað er til ráða. Kynnt verður hugsunin; ein jörð. Helstu efnisþættir eru; náttúruperlur Íslands, vatn, jarðhiti, sólar- og vindorka og nýting jarðefna. Vistvænn lífsstíll og neysluvenjur, lífræn ræktun, skógrækt, mengun, sorp og flokkun og endurnýting. Kynnt verður hugtakið sjálfbærni í þessu samhengi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhrifum mannsins á umhverfið
áhrifum hversdagslegra athafna á umhverfið
fjölbreyttum leiðum til vistvænna lifnaðarhátta
helstu náttúruauðlindum og hvernig nýtingu þeirra er háttað
helstu orkugjöfum og hvernig nýtingu þeirra er háttað
helstu mengunarvöldum og hvað er til ráða
hugtökunum vistspor og sjálfbærni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sýna vistvænan lifnaðarhátt í verki
flokka sorp eftir aðstæðum hverju sinni
endurnýta og endurvinna eftir aðstæðum hverju sinni
nýta matvæli vel
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja mat á upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
leggja mat á upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
taka þátt í umræðum um umhverfismál
taka afstöðu til umhverfismála
meta ákvarðanir um eigin lífstíl og neyslu á gagnrýninn hátt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.