Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455624125.32

    Lestur, menning og mannlíf
    ENSK1LM05(ST)
    34
    enska
    lestur og menning, tjáning
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    ST
    Áhersla verður lögð á að efla alla grunnþætti, s.s. málskilning, málnotkun, lestur, hlustun og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í að skilja einfalt talað mál, tjá sig munnlega og skriflega og lesa og hlusta á einfalda texta um fjölbreytt málefni. Mest er unnið með orðaforða sem tengist daglegu lífi nemenda með áherslu á að auka sjálfstraust til að tjá sig á tungumálinu. Megin áhersla verður lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa, með þeim kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum. Nemendur fá innsýn í nokkur lönd þar sem enska er aðaltungumálið. Sérstaklega verður horft á mismunandi framburð, umhverfi, mannlíf og menningu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum orðaforða í tengslum við efni áfangans
    • orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
    • lestri og ritun einfalds texta
    • mikilvægi hlustunar í tungumálanámi
    • upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi
    • heiti nokkurra landa þar sem enska er töluð
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
    • lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
    • byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
    • svara einföldum spurningum um daglegt líf
    • fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
    • skoða umhverfi, menningu, mannlíf og mismunandi framburð í nokkrum löndum þar sem enska er aðaltungumálið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
    • vinna á fjölbreyttan hátt með einfaldan texta
    • beita virkri hlustun til að skilja inntak samræðna sem eiga sér stað í kennslustund
    • taka virkan þátt í umræðum á ensku um fjölbreytt málefni
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í notkun upplýsingatækni og hjálpargagna sem nýtast í tungumálanámi
    • auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
    • nota orðaforða og þekkingu í ensku í umræðu og verkefnavinnu um lönd þar sem enska er aðaltungumálið
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.