Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455642571.42

    Rekstur og fjármál í ferðaþjónustu
    REFJ4FF03
    1
    Rekstur og fjármál
    ekstur og fjármál í ferðaþjónustu
    Samþykkt af skóla
    4
    3
    Markmið áfangans er að nemendur öðlist yfirsýn yfir rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu og umhverfi þeirra. Fjallað er um starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja, stofnun, mismunandi rekstrarform, rekstrarumhverfi, framboð og eftirspurn, tekju og kostnaðarhugtök, verðstefnu og markaðsform m.a. Farið er yfir áætlanir og áætlanagerð s.s. rekstraráætlun, greiðsluáætlun, efnahagsáætlun og viðskiptaáætlun. Þá er fjallað um tímavirði peninga er varða mat á margvíslegum fjárfestingarkostum sem og greiningu viðskiptatækifæra. 
    Forkröfur eru engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Grundvallarhugtökum rekstrarhagfræðinnar.
    • Verðmyndun á markaði, framboði, eftirspurn og jafnvægi.
    • Framleiðsluþáttum og flokkun fyrirtækja eftir starfsemi.
    • Mismunandi rekstrarformum fyrirtækja, innra skipulagi þeirra og starfsgrundvelli.
    • Verðmætasköpun og ráðstöfun þeirra.
    • Helstu kostnaðarhugtökum.
    • Mismunandi valmöguleikum við fjármögnun fyrirtækja.
    • Mikilvægi áætlanagerðar í rekstri fyrirtækja og helstu tegundir áætlana.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nýta upplýsingatækni til að afla hagfræðilegra upplýsinga og leysa verkefni.
    • Túlka heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfinu með hjálp einfalds haglíkans.
    • Greina kostnað og tekjur fyrirtækja.
    • Reikna helstu stærðir reksturs sem áætlanagerð byggir á.
    • Skoða og reikna hagkvæmustu fjárfestingakosti fyrirtækja.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leggja mat á tekjur, rekstrarkostnað og afkomu fyrirtækja.
    • Taka þátt í margvíslegri áætlanagerð.
    • Meta hagkvæmustu fjárfestingakosti fyrirtækja út frá fyrirliggjandi upplýsingum.
    • Álykta um það hvað sé vel rekið fyrirtæki frá sjónarhóli rekstrarhagfræðinnar.
    Fjölbreytt verkefnavinna og skriflegt lokapróf