Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B1-B2 í Evrópska tungumálarammanum. Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa grunnþætti tungumálanáms, þ.e. lestur, tal, ritun og hlustun. Áhersla er á flóknari orðaforða nemenda og málnotkun.
Hæfnieinkunn B úr grunnskóla eða 1. þrep í ensku
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lestri fjölbreyttra texta, m.a. úr fjölmiðlum
völdum kvikmyndum og bókmenntatextum
uppbyggingu ritunarverkefna
munnlegri og skriflegri tjáningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða texta og kvikmyndir m.t.t. til sögusviðs og persóna
beita mismunandi lestraraðferðum á mismunandi texta
tjá sig munnlega og skriflega á lýtalítilli ensku um málefni sem hann hefur kynnt sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu skriflega og munnlega
skrifa ólíkar tegundir texta, m.a. rökfærsluritgerð um efni sem þeir hafa kynnt sér
tjáð sig skýrt á góðri ensku formlega og óformlega
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá