Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1456217407.5

    Forritanleg raflagnakerfi I
    FRLA3RA05(FB)
    2
    Forritanleg raflagnakerfi
    forritanleg rafkerfi, fyrri áfangi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FB
    Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegum hússtjórnarkerfum. Farið er uppbyggingu á DALI og Funk-bus hústjórnarkerfum og hönnun þeirra. Nemendur læra uppsetningu kerfa ásamt efnisvali og möguleikum búnaðar til stjórnunar rafkerfa í flestum tegundum bygginga. Farið er í virkni einstakra íhluta og þeir tengdir og forritaðir þannig að nemendur fá þjálfun í að vinna sjálfstætt við uppsetningu og virkjun búnaðar og séu færir um að leiðbeina öðrum um notkun hans. Nemendur læra á viðeigandi forrit til að virkja búnaðinn ásamt frágangi á tæknilegum skjölum.
    Að nemandi hafi öðlast færni í almennum raflögnum, sé fær um að tengja búnað og geti lesið raflagnateikningar og önnur tæknileg skjöl.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu möguleikum forritanlegra hússtjórnarkerfa.
    • Íhlutum hússtjórnarkerfa og vera fær um að tengja og virkja búnaðinn.
    • Möguleikum á samtengingu mismunandi hússtjórnarkerfa við lausn verkefna.
    • Frágangi tæknilegra skjala og teikninga.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skipuleggja og ganga frá skjölum ásamt lagnateikningum hússtjórnarkerfa.
    • Tengja og ganga frá búnaði.
    • Forrita og virkja búnað.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Ráðleggja verkkaupa um uppbyggingu mismunandi forritanlegra hússtjórnarkerfa og útskýra virkni einstakra íhluta við lausnir verkefna.
    Verkefnavinna, hönnun, teikningar og tenging búnaðar.