Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Líffræði á þriðja námsári á náttúrufræðideild (haust): Líffæra og lífeðlisfræði
Líffæra- og lífeðlisfræði
H
Gerð og starfsemi líffæra og líffærakerfa mannsins
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- gerð og mikilvægi húðar
- hjarta og æðakerfi
- vessa- og ónæmiskerfi
- meltingu og meltingarfærum
- öndun og öndunarfærum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja vefjagerðir og byggingu helstu líffæra mannsins
- kryfja líffæri
- gera smásjársýni
- mæla blóðþrýsting
- taka hjartalínurit
- mæla starfsemi lungna
- gera athuganir á helstu skynfærum
- reikna út næringargildi fæðu
- afla sér heimilda og gera heimildaritgerð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fjalla um líkamann og sýna skilning á virkni hinna mismunandi líffærakerfa
- vinna eftir verklýsingum, skrá og túlka niðurstöður á skýrsluformi
- lesa og nýta sér upplýsingar í fagtímaritum
- geta skrifað og kynnt á formi fyrirlesturs heilstæðan texta um sérhæft, afmarkað efni innan líffræðinnar, byggt á vísindalegum heimilidum
- afla sér frekari þekkingar á sviði lífeðlifræðinnar
- taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. lífeðlifræðilegra þátta
Námseinkunn
Stúdentspróf