Í áfanganum er unnið með alla færniþætti tungumálsins: skilning á skrifuðu og töluðu máli, tjáningu í samskiptum og frásögn og ritun í samræmi við B1 í Evrópska tungumálarammanum. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á mikilvægi dönskunnar í norrænu samhengi og kynnist hinum Norðurlandamálunum
Hæfnieinkunn B úr grunnskóla eða 1. þrep í dönsku
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum orðaforða sem tengjast málefnum líðandi stundar
mikilvægi dönskunnar í norrænu samhengi
einkennum hinna Norðurlandamálanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa samtímabókmenntir og almenna rauntexta
skilja daglegt talað mál
tjá sig munnlega og skriflega um efni sem krefst skilnings á ólíkum sjónarmiðum
leita sér upplýsinga við tungumálanámið
meta eigin vinnubrögð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér helstu upplýsingar fjölbreytilegra rauntexta
greina inntak og merkingu samtímabókmennta
skilja talað mál við mismunandi aðstæður
gera grein fyrir eigin sjónarmiðum um þekkt málefni í töluðu og rituðu máli
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá