Í áfanganum er nemendum gefin innsýn í hvað felst í hugtakinu íþróttameiðsli og þekking þeirra aukin svo þeir geti hugað sem best að líkamlegri heilsu sinni og reyna þannig að draga úr líkum á lenda í meiðslum í íþrótt sinni. Farið verður í helstu flokka bráðra meiðsla og álagsmeiðsla. Algengi helstu meiðsla eftir íþróttagreinum, helstu áhættuþætti og forvarnir. Farið verður í fyrstu viðbrögð/meðferð við íþróttameiðslum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
bráðum íþróttameiðslum og álagsmeiðslum
algengi meiðsla eftir íþróttagreinum
mismunandi meiðsl eftir líkamssvæðum
helstu áhættuþáttum sem tengjast og valda bráðum meiðslum og álagsmeiðslum
fyrstu viðbrögðum við bráðum meiðslum og einkennum álagsmeiðsla
helstu meðferðum við bráðum meiðslum og álagsmeiðslum
helstu forvörnum sem beita má gegn mögulegum íþróttameiðslum, m.a. æfingum sem styrkja svæði sem eiga á hættu að skaðast
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina einkenni helstu flokka bráðameiðsla, s.s. brota og vöðva- og liðbandaáverka
greina einkenni helstu gerða álagsmeiðsla
bregðast rétt við bráðameiðslum, út frá PRICE-aðferðafræðinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla um íþróttameiðsl á breiðum grundvelli, orsakir, forvarnir og meðferð
gera sér grein fyrir mikilvægi forvarna, réttra æfinga, rétts stíganda ofl. í íþróttaiðkun
sýna frumkvæði og grípa inn í aðstæður þar sem íþróttamaður slasast
vera meðvitaður um áhættu við íþróttaiðkun og hvernig lágmarka má hana
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.