Fjallað er um heildræna hugsun og heildarhyggju. Kynnt eru módel sem skýra ferli heilbrigðis og sjúkdóma á heildrænan hátt. Kenndar eru aðferðir til að dýpka skynjun með höndum og opna fyrir flæði og tengingu við nuddþega. Mikil áhersla er lögð á góða líkamsbeitingu nuddara við nuddbekkinn.
KLNU3NT07
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kenningum um sálvefræna sjúkdóma og meðhöndlun sálvefrænna einkenna
samspili tilfinninga, hugsunar og líkama í myndun og meðhöndlun vöðvaspennu
módelum sem skýra ferli heilbrigðis og sjúkdóma á heildrænan hátt
hvað felst í því að vinna í flæði
gildi góðra samskipta milli meðferðaraðila og skjólstæðinga
gildi trausts í meðferðarstarfi
gildi réttrar siðferðilegar breytni í meðferðarstarfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með heildrænni nuddmeðferð í flæði
skynja spennumynstur í vefjum skjólstæðings
stuðla að áhrifaríkum samskiptum milli meðferðaraðila og skjólstæðings bæði með höndum og orðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skapa skilyrði þess að skjólstæðingar upplifi traust í meðferðartíma
veita áhrifaríka heildræna nuddmeðferð
vinna faglega með tilfinningar sem gætu komið fram hjá skjólstæðingi samhliða nuddmeðferð
beita líkama sínum rétt og á áhrifaríkann hátt við nuddbekkinn
útskýra hvað það er sem gerir nuddmeðferð heildræna
þróa breytilega samsetningu nuddtækni sem hæfir mismunandi ásetningi í hverri nuddmeðferð
Símat, ritgerð og mat á verklagi við heildræna nuddmeðferð