Í áfanganum er fjallað um mikilvægi góðra samskipta milli manna. Fjallað er um mikilvægi samkenndar, jafnréttis, mannvirðingar og mannréttinda í samskiptum. Farið er í eflandi samskipti sem byggja á virðingu og fordómaleysi á jafnréttisgrundvelli. Fjallað er um áhrif ólíkra menningarheima og tjáskiptareglna á mótun samskipta einstaklinga, hópa og þjóða. Farið er í áhrif sjálfsmyndar og sjálfstrausts á samskipti og hvað heilbrigðisstarfsmenn þurfa að hafa í huga í samskiptum við skjólstæðinga, samstarfsfólk og aðstandendur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðra samskipta
mikilvægi eflandi samskipta, sem byggja á virðingu, samkennd, fordómaleysi og jafnrétti
áhrifum ólíkra menningarheima á samskipti
áhrifum sjálfsmyndar og sjálfskilnings á samskipti
aðstæðum sem geta haft áhrif á samskipti
hvernig heilbrigðisstarfsmenn geta notað samskipti á árangursríkan hátt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja sig í spor annarra í samskiptum
sýna samkennd, virðingu og fordómaleysi í samskiptum
nota samskiptareglur og viðtalstækni á áhrifaríkan hátt í samskiptum
læra af eigin samskiptum og annarra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
eiga góð samskipti við annað fólk án tillits til stöðu, aldurs eða þjóðernis
eiga farsæl samskipti við skjólstæðinga og samstarfsfólk í starfi
leysa samskiptaerfiðleika af þekkingu og virðingu fyrir sjónarmiðum allra hlutaðeigandi