Í áfanganum læra nemendur að undirbúa og sjóða MIG-suðu og Tig-suðu á áli, ryðfríu stáli og einnig á stáli. Þeir læra að sjóða efnisþykktir 2 – 6 mm í stál , ryðfrítt stál og ál samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817) í plötu og rör. Þeir skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur læra að sjóða eftir suðuferilslýsingum og öðlast þekkingu á kostum mismunandi suðuvíra og aðferða.
HLGS2MT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
suðuferilslýsingum og gildi þeirra
áhrifum mismunandi skögunar vírs á straumstyrk, afköst og innbræðslu
eiginleikum úðaboga- og stuttbogasuðu
aðferðum til að hreinsa oxíðhúð af áli fyrir suðu
helstu suðugöllum í áli og orsökum þeirra
aðferðum til að hreinsa oxíðhúð af ryðfríu stáli eftir suðu
áhrifum suðu á tæringarþol í ryðfríu stáli
gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli
hlutverki hlífðargassins og stillingum þess
hlutum suðubyssunnar, drifbúnaði og leiðara fyrir MIG/MAG
öryggisreglum við meðhöndlun hreinsiefna fyrir ryðfrítt stál
helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, ósonmyndunar, reyks, ásamt eldfimum efnum, hlífðarfatnaði og hlífum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stilla suðutækin þ.e. straum, vírhraða, spennu og straumdempun (viðnám), þannig að hæfi efnisþykkt og suðurauf
setja rúlluvír í suðutækin og velja rétta spíssa, drifbúnað og barka
sjóða í suðustöðum PA-BW, PA-FW, PB-FW, PC-BW, PF-FW, PF-BW
gegnumsjóða 5 mm stálplötu öðru megin frá í suðustöðu PF-BW í V-rauf
hreinsa oxíðhúð af áli fyrir suðu
hreinsa oxíðhúð af ryðfríu stáli eftir suðu
sjóða eftir suðuferilslýsingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut
meta algengustu suðugalla og orsakir þeirra
mæla og skrá viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið s.s. spennu, straum, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar
velja vír m.t.t. efnis og suðuraufar
sinna viðhaldi á fylgibúnaði suðuvéla
velja rétta spíssa
greina suðugalla í áli
greina helstu hættur, gera varúðarráðstafanir og nota viðeigandi öryggisbúnað
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.