Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459336449.57

    Tungumál og viðskipti
    ENSK3TV05
    127
    enska
    Tungumál og viðskipti
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn byggir á orðaforða, ritun, málfræði og lestri. Unnið er út frá ákveðnum þemum og verkefnum. Áhersla er á að nemandinn nái tökum á grunnmálfræði sem skilgreind er í þrepi C1 skv. Evrópsku tungumálamöppunni. Áfanginn á að undirbúa nemendur fyrir nám á stigi C2 skv. Evrópsku tungumálamöppunni. Fjallað er um tungumál viðskipta (Company structures, recruitment, mangagement styles, advertising, marketing, franchising, business world, business and the environment, retailing, banking, the stock exchange, corporate alliances and acquisitions, the small business, international trade, insurance, corporate identity, etc.).
    ENSK2SO05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tungumáli viðskipta, s.s. orðalag og hefðir í viðskiptabréfum
    • orðaforða alþjóðlegra viðskipta
    • hefðum sem eiga við um talað og ritað mál í samhengi viðskipta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • notkun tungumálsins í viðskiptaumhverfi
    • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum
    • tjá sig af öryggi um viðskiptatengd málefni
    • beita ensku ritmáli í viðskiptalegum tilgang
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja gagnrýnið mat á texta sem er viðskiptafræðilegur
    • hagnýta sér fræðitexta og meta upplýsingar á gagnrýnin hátt
    • beita málinu án meiriháttar vandkvæða til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um viðskiptatengd efni
    • átti sig á að að er mismunandi menning í þeim löndum sem við eigum viðskipti við og það hefur áhrif á notkun tungumálsins
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.