Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459341469.6

    Ávöxtunarkrafa og verðbréf
    FJÁR3ÁV05
    2
    fjármálalæsi
    Ávöxtunarkrafa og verðbréf
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er í beinu framhaldi af FJÁR2FH05, fjármálalæsi. Áhersla er lögð á stærðfræðilega nálgun og þjálfun í útreikningum þar sem telja má að kunnáttan hafi almennt hagnýtt gildi. Fjallað er um markað fyrir helstu tegundir verðbréfa og meginatriði sem varða mat á fjárfestingavalkostum. Markmiðið er að gera nemendur kleift að taka upplýstar ákvarðanir í eigin fjármálum sem byggja á staðreyndum svo að þau verði sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.
    FJÁR2FH05 og STÆR2AF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skuldabréfum og hlutabréfum
    • núvirði og framtíðarvirði
    • helstu vaxtahugtökum
    • muninum á nafnávöxtun og raunávöxtun
    • helstu kennitölur ársreikninga og hlutabréfa og vísitölur hlutabréfa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna vaxtaupphæð, framtíðarvirði höfuðstóls, núvirði höfuðstóls, vaxtaprósentu í einföldum og samsettum vaxtareikningi
    • reikna kaupverð, gengi, afföll og yfirverð skuldabréfa og reikna virði verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa og greiðslur tengdar þeim hvort sem þau eru með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum
    • reikna kennitölur úr ársreikningum fyrirtækja og kennitölur hlutabréfa
    • reikna greiðslur, núvirði, framtíðarvirði og innri vexti greiðsluraðar
    • reikna með aðstoð núvirðisreikninga hver er hagkvæmasti fjárfestingarvalkosturinn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa, greina og stjórna fjármálum sínum
    • leggja raunhæft mat á mismunandi fjárfestinga- og/eða lánatilboða sem hann kann að standa frammi fyrir
    • nota netið sér til öflunar fjármálalegra upplýsinga
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.