Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459414690.42

    Tölfræði og líkindareikningur
    STÆR2TL05
    148
    stærðfræði
    líkindareikningur, tölfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Fjallað er um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim, einkennistölur fyrir gagnasöfn, miðsækni og dreifingu. Undirstöðuatriði líkindareiknings á endanlegu útkomurými, þar á meðal frumatriði talningarfræði. Farið verður í tvíkostadreifingu og normaldreifingu. Úrtaksdreifing skoðuð. Könnuð er fylgni og jafna bestu línu. Verkefni eru unnin með aðstoð reiknitækja auk þess sem helstu föll tölfræðinnar verða sýnd í Excel. Tölfræði skoðuð í gegnum Geogebru.
    STÆR2HG05 eða STÆR2AF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu aðferðum lýsandi tölfræði s.s. miðsækni og dreifð
    • fylgni ásamt jöfnu bestu línu
    • grundvallaratriðum talningafræði og beitingu talningaregla
    • líkindareikningi og helstu líkindareglum
    • tvíkostadreifingu og notkun hennar við lausn líkindadæma
    • normaldreifingu og beitingu hennar í úrtaksdreifingu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lýsa tölfræði svo sem að lýsa miðsækni tölulegra gagnasafna og dreifingu þeirra
    • setja fram myndræna túlkun til að skýra niðurstöður
    • beita talningarfræði og ýmsum grunnreglum í líkindafræði til þess að reikna heildarlíkindi fyrir samrýmanlega og ósamrýmanlega atburði, háða og óháða atburði, skilyrt líkindi
    • beita marktæknireikningum með notkun normaldreifingar ásamt því að nota normaldreifingu til að meta tilgátur
    • reikna fylgni og útskýra niðurstöður fylgnireiknings
    • líta gagnrýnum augum á tölfræði í daglegu umhverfi
    • nota töflureikni (Excel eða sambærilegt) til að leysa verkefni og setja upp niðurstöður í tölum og myndum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu tölfræðilegra viðfangsefna
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
    • nýta sér normaldreifingu til að meta gögn og álykta
    • gera sér grein fyrir takmörkunum tölfræðinnar
    • geta með gagnrýnum hætti rökrætt tölfræðilegar niðurstöður
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.