Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459415595.94

    Almenn líffræði
    LÍFF1LA05
    14
    líffræði
    Almenn, líffræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er fyrir nemendur á öðrum brautum en raunvísindabraut.Gerð er grein fyrir hlutverki líffræðinnar, tengslum við aðrar fræðigreinar og vísindaleg vinnubrögð útskýrð. Fjallað er um frumur og grundvallaratriði erfða, næringarfræði, örverur og þar með gangsemi og skaðsemi þeirra. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á umhverfi sínu, náttúru Íslands, umhverfismálum og mikilvægi þeirra í daglegu lífi. Umfjöllun hverju sinni er tengd daglegu lífi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • eigin líkama, heilbrigðum lífstíl og næringu
    • bakteríum og veirum með áherslu á sjúkdóma m.a. kynsjúkdóma
    • erfðafræði, stökkbreytingum og krabbameinum
    • fjölbreytileika lífvera, sérkenni íslenskrar náttúru og nánasta umhverfi
    • vísindalegum aðferðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa líffræðilegan texta og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
    • nota upplýsingatækni við heimildaöflun og vinnu
    • beita vísindalegum aðferðum til að framkvæma verklegar æfingar, nota ljóssmásjá og einföld rannsóknartæki
    • skrifa skýrslur og leysa verkefni um afmörkuð viðfangsefni
    • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi
    • lesa fréttagreinar og almenn vísindarit
    • leggja mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu
    • meta hvað sé heilbrigt líferni og vera ábyrgur fyrir eigin kynheilbrigði
    • átta sig á gildi náttúrunnar sem fæðugjafa
    • bera virðingu fyrir og vera ábyrgur gagnvart lifandi náttúru
    • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi í einstaklingsverkefnum og í samvinnu við aðra
    • meta á hverju heilbrigt líferni byggir, hvað varðar neysluvenjur og kynheilbrigði
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.