Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459778018.87

    Eðlisfræði - raffræði, bylgjur og ljós
    EÐLI3BR05
    58
    eðlisfræði
    bylgur, raffræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur kynnast grundvallarhugtökum í Rafmagns- og Ljósbylgjufræði og geti beitt þeim við úrlausn verkefna sem lögð eru fyrir. Nemendur eiga að geta beitt þeim einingum SI einingakerfisins er tengjast námsefninu. Efnisþættir: Rafmagnsfræði, bylgjufræði, ljósbylgjufræði og viðbótarefni því tengt.
    Að nemandi hafi lokið einum áfanga í eðlisfræði á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum í rafmagns- bylgju- og ljósgeislafræði
    • hinum ýmsu lögmálum eðlisfræðinnar ss. Lögmál Coulombs, Ohms og Faradays
    • hugtökunum rafkraftur, rafsvið og hleðsla og geti fundið rafkraft milli tveggja hlaðinna hluta
    • reglum Kirchoffs um tengipunkt í rafrás
    • jafnstraumsrásum og kunni að beita Ohms-lögmáli til að finna heildarviðnám í rað- og hliðtengdum rásum
    • sveiflum og bylgjum og geti reiknað fyrir hana sveiflutíma, tíðni og hornhraða
    • helstu hugtökum í ljósgeislafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með grundvallarhugtök eðlisfræðinnar sem tengjast viðkomandi efni
    • vinna með hugtökin rafkraftur, rafsvið og hleðsla
    • að reikna út strauma, spennu og viðnám í mismunandi rafrásum
    • leysa ýmis verkefni sem tengjast bylgjum
    • leysa dæmi sem þar sem sveiflutími og hornhraði koma fyrir.
    • leysa dæmi sem tengjast ljósgeislafræði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita grundvallarhugtökum eðlisfræðinnar sem tengjast viðkomandi efni.
    • nota og skilja lögmál eðlisfræðinnar við lausn ýmissa verkefna.
    • beita lögmálum sem tengjast rafkrafti, rafsviði og hleðslu og geta nýtt sér þá kunnáttu við lausn verkefna.
    • nota viðeigandi reglur til að reikna út strauma, spennu og viðnám í mismunandi rafrásum.
    • leysa ýmis verkefni sem tengjast bylgjum
    • leysa ýmis verkefni sem tengjast ljósgeislafræði
    Leiðsagnarmat