Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460033605.4

    Markaðsfærði
    MARK2AM05
    8
    markaðsfræði
    almenn markaðsfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Farið er yfir grunnhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild. Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra við markaðssetningu. Kynnt eru fyrir nemendum helstu atriði er varða umhverfi fyrirtækja, markaðshlutun, markaðsrannsóknir, markaðsáætlanir og vinnubrögð við markaðssetningu.
    Inngangur að félagsvísindum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • söluráðunum fjórum
    • markaðshlutun
    • helstu hugtök tengdum vöruþróun
    • helstu þáttum í umhverfi fyrirtækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja saman söluráða
    • greina umhverfi fyrirtækja og markaðshluta
    • gera markaðskönnun og greina niðurstöður
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa vörur og markaðssetja
    • gera markaðskönnun