Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460375707.57

    Inngangur að uppeldis- og menntunarfræði
    UPPE2UM05
    27
    uppeldisfræði
    uppeldis- og menntunarfræði - inngangur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um uppeldis- og menntunarfræði sem fræðigrein, rætur hennar, sögu og hagnýtingu. Lögð er áhersla á að efla skilning á mikilvægi uppeldis og menntunar og að nemendur öðlist hæfni til að takast á við störf er tengjast uppeldi og menntun. Margs konar verkefni eru unnin í áfanganum og áhersla er lögð á að nemandinn þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum og virkri samvinnu við aðra. Einnig að nemendur fái þjálfun í fjölbreytilegri gagnaöflun og að kynna niðurstöður sínar skriflega og munnlega.
    Hæfnieinkunn C í samfélagsgreinum úr grunnskóla eða 1. þrep í íslensku
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mótunaraðilum uppeldis og menntunar í samfélaginu
    • kenningum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
    • margvíslegum könnunum á uppeldi og menntun
    • aðalatriðum í sögu uppeldis og menntunar
    • mikilvægi siðareglna þeirra sem starfa með börnum og unglingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • túlka margvíslegar kannanir tengdar uppeldi og menntun
    • greina á milli tilfinningalegs mats og faglegs mats á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
    • skoða innra starf leikskóla og setja fram til kynningar
    • beita einföldum kenningum í uppeldis- og menntunarfræði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja sjálfur gagnrýnið mat á hvað er vænlegt til árangurs í uppeldi barna
    • geta hagnýtt sér kenningar í raunhæfum verkefnum
    • meta siðferðileg álitamál í tengslum við uppeldi og menntun
    • afla sér heimilda eftir fjölbreytilegum leiðum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá