Fjallað er um hreyfifræði í einni vídd, verkan jafnra krafta og lögmál Newtons. Einnig er fjallað um skriðþunga massa og vinnu jafnra krafta, vélræna orku og afl. Loks er fjallað um þrýsting í kyrrstæðum vökva og uppdrif í vökva.
STÆR3KV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hreyfifræði í einni vídd
aflfræði Newtons
tengslum skriðþunga og krafta
vinnu jafnra krafta og vélrænni orku í einföldum lokuðum kerfum
þrýstingi og uppdrifi í kyrrstæðum vökva
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa einföld verkefni og reikninga í hreyfifræði og aflfræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa einföld verkefni sem fela í sér mælingar og athuganir á hreyfingu hluta og aflfræðilegum fyrirbærum og geta greint frá helstu niðurstöðum athugana sinna í stuttri skýrslu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá