Jarðfræði – almenn jarðfræði, grunnáfangi fyrir náttúrufræðibraut
Samþykkt af skóla
2
5
Fjallað er um grundvallaratriði flekakenningarinnar og sögu hennar . Sérstaklega er fjallað um eldvirkni og jarðskjálftavirkni í heiminum og rannsóknir á sviði eldfjallafræði og jarðskjálftafræði. Áhersla er lögð á að tengja virkni jarðar við landafræði heimsins með sérstaka áherslu á Ísland og jarðfræðilega virkni þar. Kynning á landmótun og þeim greinum jarðfræðinnar sem fjalla um útræn öfl.
Hæfnieinkunn C i náttúrufræði úr grunnskóla
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallaratriðum flekakenningarinnar um hreyfingu jarðskorpufleka og virkni á flekamörkum
þekkja skilgreiningu á heitum reitum
þekkja helstu höfunda kenninga um rek meginlanda og hafsbotnsins
jarðfræði Íslands í ljósi flekareks og virkni á heitum reit
helstu þáttum landmótunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
staðsetja jarðfræðilega virk svæði á landakorti út frá flekamörkum
leggja mat á fréttir af jarðfræðilegri virkni, svosem jarðskjálftum og eldvirkni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa út úr landslagi hvaða jarðfræðilegu ferli hafi átt mestan þátt í að móta ásýnd þess
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.