Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460389924.76

    Jafnvægi, lofttegundir, oxun og afoxun
    EFNA3JL05
    55
    efnafræði
    3. áfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut, jafnvægi, lofttegundir, oxun og afoxun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga sem er á 3. þrepi er aukin áhersla á að nemendur geti nýtt sér markvisst fyrri þekkingu, sýni sjálfstæðari vinnubrögð og tengi saman fleiri og flóknari efnisþætti. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: efnafræði lofttegunda, jafnvægi í efnahvörfum, sýrur og basar, jafnalausnir, títranir og leysnimargfeldi, orka í efnahvörfum og oxun og afoxun.
    EFNA2EH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • efnafræði lofttegunda
    • jafnvægi í efnahvörfum
    • efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum
    • efnafræði lausna, jafnalausnum, títrunum og leysnimargfeldi
    • oxun og afoxun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota jafnvægisfasta og jafnvægisstyrki til útreikninga
    • vinna með flóknari útreikninga tengda sýrum og bösum en áður
    • reikna orkubreytingar í efnahvörfum og tengja saman orkubreytingar og jafnvægisástand
    • vinna með oxun og afoxun efna í tengslum við rafefnafræði
    • sýna sjálfstæði við framkvæmd verklegra æfinga og og vinna úr niðurstöðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
    • leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna og annarra
    • axla ábyrgð á eigin námsframvindu og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
    • nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í rökræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá