Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460393402.39

    Tækni og hreyfifærni, SMART markmiðssetning
    AÍÞR1TH02
    11
    Afreksíþróttir
    Tækni og hreyfifærni
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er eingöngu ætlaður nemendum á íþróttafrekssviði og er kenndur í samráði við íþróttafélag nemandans. Áfanginn er miðaður við að nemandinn geti stundað sína íþróttagrein samhliða skóla og er einstaklingsmiðaður. Í áfanganum er unnið með helstu einkenni í tækni og hreyfifærni. Kennt er hvar er hægt að finna góðar líkamlegar æfingar til að fylgja eftir þróun í sinni grein. Unnið er með SMART-kerfið til að setja sér markmið og haldið er áfram að vinna með markmiðssetningu íþróttamannsins.
    AÍÞR1SÆ02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu einkennum þeirrar tækni sem beitt er í greininni og hvar hægt sé að fygjast með nýjungum í tækni greinarinnar
    • helstu einkennum í hreyfifærni og hvar hægt sé að finna æfingar
    • helstu einkennum þols og hvar hægt sé að finna þolæfingar sem nýtast
    • helstu einkennum styrks og hvar hægt sé að finna góðar styrktaræfinga
    • elstu einkennum liðleikaþjálfunar og hvernig liðleikaæfingar eru valdar
    • SMART-kerfinu er og hvernig það er notað við markmiðssetningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina eðlilega framþróun í tækni, geta gagnrýnt eigin tækni og greint styrkleika og veikleika sína í tækniæfingum
    • þróa hreyfifærni sína, greina hana í styrkleika og veikleika
    • bæta þolið og greina styrkleika og veikleika sína í þolforminu
    • bæta styrk sinn og greina styrkleika og veikleika sína í styrktarforminu
    • beita hentugum liðleikaæfingum
    • vinna með markmið út frá S-sértæk, M-mælanleg, A-áhersla á hegðun, R-raunhæft og T-tímasett
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja mat á eigin getu og nýtt rétta tækni
    • leggja gagnrýnið mat eigin hreyfihæfni
    • velja réttar þolæfingar og leggja gagnrýnið mat á eigið þol
    • leggja mat á eigin getu í styrk
    • greina styrkleika og veikleika sína í liðleikafærni
    • nýta SMART markmiðssetninguna, geta breytt og skipt út því sem hentar ekki
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.