Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460476195.88

    Tölvunotkun, upplýsingatækni 2
    UPPL2RT05(AN)
    3
    tölvunotkun, upplýsingatækni
    ritvinnsla, töflureiknir, vefsíðugerð
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    AN
    Í áfanganum er leitast við að búa nemendur undir frekara nám og/eða krefjandi störf á vinnumarkaði. Nemendur fá þjálfun í að meðhöndla texta og töluleg gögn, móta þau og setja fram á læsilegan og/eða myndrænan hátt.
    UPPL2TU05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öllum helstu grunnaðgerðum í helstu forritum til miðlunar á texta og tölulegum gögnum
    • samþættingu gagna milli mismunandi forrita
    • upplýsinga- og menningarlæsi og mikilvægi þess
    • gagnagrunnum og mikilvægi þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • öllum helstu grunnaðgerðum í helstu forritum til miðlunar á texta og tölulegum gögnum
    • helstu grunnaðgerðum í gagnagrunni
    • upplýsinga- og menningarlæsi og átti sig á mikilvægi þess
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna með allar helstu grunnaðgerðir í tengslum við texta og töluleg gögn, móta þau og setja fram á læsilegan og/eða myndrænan hátt
    • meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt
    • átta sig á mikilvægi menningarlæsis í tengslum við alþjóðasamskipti
    • vinna með grunnaðgerðir í gagnagrunnum
    Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.