Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460622757.77

    Þjálfun barna og unglinga
    ÍÞRF2ÞJ03
    18
    íþróttafræði
    þjálfun
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarfi. Sérstaklega verður miðað við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemendur fá undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við íþróttameiðslum. Fjallað er um mataræði íþróttamanna og kosti og ókosti orkudrykkja og fæðubótarefna. Fjallað er um þjálfarann sem fyrirmynd og í því samhengi áhrif áfengis, tóbaks og annara vímuefna á líkamann og afkastagetu íþróttamanna. Áfanginn er bóklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki þjálfarans
    • skipulagi og áætlanagerð í þjálfun
    • muninum á þjálfun barna og unglinga
    • hreyfiþroska, sálrænum þroska og félaglegum þroska barna
    • mikilvægi holls mataræðis í þjálfun
    • mikilvægi þess að þjálfarinn sé fyrirmynd
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja þjálfun til lengri og skemmri tíma
    • standa fyrir framan hóp og útskýra æfingar
    • notfæra sér upplýsingatækni við þjálfun og undirbúning þjálfunar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla þekkingu sinni til iðkenda við grunnþjálfun barna og unglinga
    • skipuleggja grunnþjálfun miðað við mismunandi aðstæður og mismunandi getustig iðkenda
    • aðlaga og breyta æfingum svo þær hæfi mismunandi aldursstigum