Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum aflfræði og ljósgeislafræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: mælingar og óvissumat, líkön, fræði og lögmál, hreyfing í einni vídd, vigrar og grafísk lýsing á hreyfingu, hreyfilögmál Newtons, þyngdarkraftur og núningskraftur, tengsl vinnu og orku, nokkrar orkumyndir og varðveislulögmál tengd þeim, speglun og brot ljósgeisla, myndir í sléttum spegli, lögmál Snells, alspeglun og ljósþráðatækni.
STÆR2LH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
því hvað felst í vísindalegri aðferð
SI-kerfinu og SI-einingum stærða sem unnið er með
helstu hugtökum sem notuð eru í hreyfifræði, aflfræði og ljósgeislafræði
helstu lögmálum ofannefndra greina, svo sem hreyfilögmálum Newtons og varðveislulögmálum vélrænnar orku og heildarorku, endurvarpslögmálinu og lögmáli Snells
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fara með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
beita lögmálum og jöfnum úr námsefninu við að leysa verkefni af ýmsu tagi
leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum
framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra
setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
nota námsefni og gögn á markvissan hátt
yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
Námsmat er byggt á fjölbreyttu mati: Verkefnavinna, krossapróf, skýrslur úr verklegum æfingum og lokapróf.