Í áfanganum er almenn aðferðafræði raunvísinda kynnt nemendum sem og uppruni lífvísinda og fjölbreytileiki þeirra. Uppbygging lífheimsins er skoðuð; bygging og hlutverk lífrænna efna, frumulíffæra, frumna, vefja, líffæra og helstu líffærakerfa, með áherslu á líkama mannsins. Nemendur læra um grunnstarfsemi lífvera, ljóstillífun og önnur mikilvæg grunnefnaskipti. Einnig er fjallað um frumuskiptingu, æxlun og helstu kenningar erfðafræðinnar. Farið er yfir grundvallaratriði varðandi flokkun lífvera og nafngiftakerfi og helstu hópar lífvera kynntir nánar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á umhverfi sínu og tengslum líffræðinnar við daglegt líf auk þess að undirbúa þá undir frekara nám í náttúrufræðigreinum.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum, sérkennum og aðferðafræði líffræðinnar
eiginleikum og hlutverki helstu efna líkamans, lífrænum og ólífrænum
byggingu og starfsemi fruma, líffæra og líffærakerfa með áherslu á eigin líkama
grunnstarfsemi lífvera og efnahvörfum þeirra, t.d. ljóstillífun og frumuöndun
helstu kenningum og grunnhugtökum um erfðir og þróun
helstu einkennum mismunandi lífvera og flokkun þeirra í t.d. ríki og fylkingar
verklagi í verklegum líffræðilegum athugunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita grunnhugtökum líffræðinnar á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi
tjá sig um líffræðileg málefni á skýran og ábyrgan hátt
lesa einfaldar líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum frá mismunandi miðlum
skoða og greina lífverur í náttúrunni
beita vísindalegum aðferðum við líffræðilegar athuganir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum á gagnrýninn hátt
taka þátt í umræðum um líffræðileg málefni daglegs lífs á ábyrgan og sjálfstæðan hátt
taka ábyrga afstöðu um eigin velferð með tilliti til einfaldra líffræðilegra þátta
afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum
koma þekkingu sinni á framfæri á skapandi hátt
taka þátt í verklegum líffræðilegum æfingum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.