Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1460722953.36

    Hagnýtur orðaforði
    ENSK2HF05
    106
    enska
    Hagnýtur orðaforði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áhersla á aukinn hagnýtan orðaforða, ritun, munnlega færni og lestur þyngri texta. Minni áhersla er á málfræði en helstu atriði rifjuð upp í gegnum ýmis verkefni. Unnið er í verkefnalotum með ákveðin þemu í senn. Áfanginn er undirbúningur fyrir aukna áherslu á fagorðaforði og því byrjað að leggja inn grunn að fagorðaforða (academic vocabulary). Áfanginn er á stigi B2 skv. Evrópsku tungumálamöppunni.
    Nemandi skal hafa lokið grunnskólaprófi með einkunn B, B+ eða A, eða staðist undanfara ENSK1MF05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hefðum um ritað mál
    • þverfaglegum orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • munnleg og skrifleg færni sem mætir hæfniviðmiðum þrepsins
    • ólíkum viðhorfum, gildum, siðum og venjum sem móta menninguna þar sem tungumálið er talað
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lestri ýmis konar texta
    • mismunandi lestraraðferðum
    • að tjá sig hnökralaust um málefni sem nemandinn hefur kynnt sér og undirbúið
    • skrifa formlega og óformlega texta
    • að tjá sig skýrt, munnlega og skrifleg
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
    • taka þátt í skoðanaskiptum
    • fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
    • geta útskýrt sjónarmið varðandi efni sem er ofarlega á baugi og rakið ólík rök með og á móti þeim
    • fylgja mismunandi rithefðum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.