Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1461144525.86

    Algebra og föll
    STÆR2AF05
    160
    stærðfræði
    algebra, föll, gröf
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Þessi áfangi er fyrir nemendur á raunvísindabraut og viðskipta- og hagfræðibraut. Meginefni áfangans er algebra, föll og mengi. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Bókstafareikningur: Veldi og rætur. Jöfnur af öðru stigi. Könnun annars stigs ferla (fleygboga). Könnun falla með gerð formerkjataflna. Meðferð algebrubrota. Margliðudeiling. Ójöfnur af fyrsta og öðru stigi. Föll: Fallhugtakið innleitt og nokkur algeng föll kynnt, t.d. tölugildisfallið. Grunnhugtök mengjafræði, s.s. stök, hlutmengi, sammengi og Vennmyndir.
    Nemandi hafi lokið grunnskólapróf með hæfnieinkunn B, B+ eða A, eða lokið 1.þrepi í stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • velda og róttarreikningi
    • hnitakerfinu, beinni línu og fleygboga
    • jöfnum, þáttun liðastærða og algebrubrotum
    • margliðudeilingu við þáttun margliða
    • formerkjatöflum fyrir föll og skilja tengsl formerkjataflna við gröf fallanna
    • frumtölum og frumþáttun
    • mengjum og mengjatáknum
    • jöfnum og ójöfnum
    • tölugildis hugtakinu, einföldum tölugildis jöfnum og ójöfnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita veldareglum við ýmiss konar umritanir
    • vinna með hnitakerfið, beinar línur og fleygboga, finna skurðpunkta falla, teikna gröf falla og setja upp jöfnur
    • leysa annars stigs jöfnur með ferningsrótaraðferð, þáttun og með lausnarformúlu, leysa rótarjöfnur og að nota breytuskipti til að leysa dulbúnar annarsstigs jöfnur
    • þátta margliður með margliðudeilingu og útbúa formerkjatöflur
    • leysa ójöfnur m.a með hjálp formerkjatöflu
    • leysa algildis jöfnur og ójöfnur og teikna lausnir upp á talnalínu
    • lengja, stytta, deila, margfalda og leggja saman algebrubrot
    • vinna með fallhugtakið, s.s. að ákvarða hvort vörpun er fall, finna formengi og varpmengi og teikna gröf falla
    • nota einfaldan mengjareikning og Vennmyndir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefni og vinna með þau
    • skrá lausnir skipulega og setja fram á viðeigandi hátt í máli og riti
    • beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
    • geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og riti
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.