Persónuleg tengsl, aðhald, réttindi og skyldur nemenda
Samþykkt af skóla
1
1
B
Í áfanganum er verið að treysta persónuleg tengsl nemenda við kennara og náms-og starfsráðgjafa. Farið verður yfir réttindi og skyldur nemenda á framhaldsskólabraut og kynnt fyrir nemendum hvar vænta megi aðstoðar og úrlausna ef eitthvað kemur uppá. Sérstök áhersla á að byggja upp traust á milli nemenda og umsjónarkennara og nemanda og náms-og starfsráðgjafa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að umsjónarkennari er trúnaðarmaður nemenda í skólanum auk náms-og starfsráðgjafa
að einkaviðtöl og hópfundir á milli nemenda og kennara/náms-og starfsráðgjafa treysta persónuleg tengsl
hvar hægt er að fá aðstoð innan skólans
réttindum og skyldum nemanda í framhaldsskóla
umsjón og aðhaldi skólans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig við umsjónarkennara/náms-og starfsráðgjafa
kunna skil á réttindum sínum og skyldum sem nemandi
mæta í skólann og skila verkefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir að hægt er að leita sér aðstoðar ef með þarf
skilja að umsjónarkennari og náms-og starfsráðgjafi eru til staðar fyrir nemendur
gera sér grein fyrir að góð ástundun er undirbúningur fyrir nám- og störf í framtíðinni
gera sér grein fyrir að aðhald og umsjón er til að styðja við ástundun og framfarir í námi