Áfanginn er kynning á stjórnmálafræðinni sem fræðigrein og þeim aðferðum sem hún notar til greiningar. Nemendur kynnast helstu stjórnmálastefnum, kenningum og hugtökum stjórnmála. Nemendur fá þjálfun í að greina álitamál og átakafleti stjórnmála með verkfærum greinarinnar. Áhersla er lögð á að nemendur geti tjáð sig í ræðu og riti um stjórnmál og áhrif þeirra á hópa og einstaklinga.
FÉLA1IH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugmyndastefnum stjórnmála
íslensku flokkakerfi og stefnumálum íslenskra stjórnmálaflokka
helstu átakamálum og viðfangsefnum stjórnmála
helstu hugtökum stjórnmála (t.d. lýðræði, vald, stjórnkerfi, mannréttindi og fullveldi)
hlutverki og virkni alþingis
áhrifum fjölmiðla og almenningsálits á stjórnmál
virkni stjórnkerfa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita hugtökum og kenningum stjórnmálafræðinnar á raunveruleg viðfangsefni
greina og meta ólíkar stjórnmálastefnur og áhrif þeirra á samfélag og stjórnmálastarf
greina álitamál frá mörgum hliðum, vega og meta ólíka hagsmuni
taka afstöðu til ólíkra málefna og rökstyðja hana
afla upplýsinga um stjórnmálatengd málefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í rökræðum um stjórnmál og fundið leiðir að lausnum í álitamálum
fylgjast með stjórnmála- og samfélagsumræðu hérlendis og erlendis
vinna úr upplýsingum með skipulögðum og fræðilegum aðferðum
meta og kynna niðurstöður gagnavinnu
vinna í samvinnu við aðra að sameiginlegum verkefnum
meta áhrif stjórnmála á daglegt líf og hvernig þau hafa áhrif á aðstæður einstaklinga og hópa
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.