Kynja- og jafnréttisfræðsla, saga jafnréttisbaráttunnar og fleira. Birtingarmyndir kynjaskekkjunnar klámvæðing og kynbundið ofbeldi og eru skoðuð og greind í gegnum fjölmiðla, stjórnmál, dægurmenningu og fleira. Áfanginn byggir á virkni og þátttöku nemenda í sjálfskoðun, greiningu á umhverfi sínu og umræðum um eigin viðhorf jafnt og annarra.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum og kenningum kynjafræðinnar
birtingarmyndum kynjaskekkju eins og hún birtist í samfélaginu s.s. fjölmiðlum
kynbundnu ofbeldi og afleiðingum þess
nokkrum helstu atriðum í sögu jafnréttisbaráttunnar á Vesturlöndum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita hugtökum og kenningum kynjafræðinnar á raunveruleg viðfangsefni
taka þátt í umræðu, munnlega og skriflega, um kynjafræði
greina stöðu jafnréttismála og kynjaskekkju í eigin samfélagi og annarra
greina staðalmyndir kynjanna í samfélagslegri orðræðu og myndefni eins og hún birtist í fjölmiðlum og víðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja helstu orsakir kynjaskekkjunnar samkvæmt hugmyndum kynjafræðinnar
greina samfélagið með gleraugum kynjafræðinnar og geta beitt félagsfræðilegu innsæi til að tengja gildi samfélagsins í þeim efnum við eigið líf
meta og greina heimildir á sviði áfangans á fræðilegan hátt og geta hagnýtt þær í eigin þágu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá