Í áfanganum er fjallað um aðgerðir á vettvangi, skoðun og mat. Farið er yfir endurlífgun, helstu blæðingar, lost og viðbrögð við lostástandi. Einnig eru teknar fyrir helstu tegundir sára,
umbúðir og sárabindi og farið í helstu orsakir bruna, flokkun brunasára og skyndihjálp við bruna. Helstu höfuð, háls og hryggáverkum eru gerð skil ásamt brjóst-, kvið- og
mjaðmaáverkum. Einnig er farið í beina-, liðamóta- og vöðvaáverka. Nemandinn lærir að spelka útlimi sem orðið hafa fyrir áverka. Farið er í bráða sjúkdóma, eitranir, bit og stungur, ásamt umfjöllun um viðbrögð við kali, ofkælingu og háska af völdum hita. Farið er í björgun og flutning einstaklinga af slysstað.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugmyndafræði skyndihjálpar
hvernig mat á slösuðum einstaklingi á slysstað er framkvæmt
framkvæmd endurlífgunar
blæðingum og viðbrögðum við lostástandi
helstu tegundum sára, umbúða og sárabinda
helstu tegundum brunasára og skyndihjálp vegna brunasára
helstu áverkum á líkama
fyrstu viðbrögðum við kali, ofkælingu og ofhitnun
fyrstu viðbrögðum vegna bráðra sjúkdóma, eitrana, bits eða stungna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bregðast við dauðadái
framkvæma mat og skoðun á slösuðum einstaklingum
flytja slasaðan einstakling af slysstað á öruggan hátt
framkvæma blástursmeðferð og hjartahnoð
búa um sár og velja umbúðir við hæfi
stöðva blæðingu og búa um blæðandi sár
beita viðeigandi meðferð við losti
spelka útlimi eftir áverka/tognanir
veita fyrstu hjálp vegna brunasára
veita fyrstu hjálp vegna kals, ofkælingar og ofhitnunar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta aðstæður á slysstað og bregðast við þeim á viðeigandi hátt
veita skyndihjálp vegna bráðra sjúkdóma, dauðadás, slysa og/eða líkamlegra áverka
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.