Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464008377.37

    Námsdvöl búfræði
    NÁMD2ND15
    2
    Námsdvöl
    Námsdvöl á kennslubúi
    Samþykkt af skóla
    2
    15
    Dvöl á námsdvalarbýli þar sem nemandi tekur þátt í öllum þáttum búskapar. Nemandi kynnist rekstri á námsdvalarbýlinu og fær að prófa að vinna öll þau verk sem þarf að vinna á námsdvalarbýli á meðan námsdvöl stendur. Mikilvægt er að nemandi fái tækifæri til að koma að sem flestum þáttum búskaparins, svo sem vélavinnu, hirðingu og umsýslu búfénaðar, umhirðu girðinga og útihúsa og kynnist vinnu við bókhald búsins. Nemandi heldur dagbók á meðan á námsdvöl stendur. Nemandi þarf að ljúka 390 klukkustundum í vinnu og má deila því á 65 vinnudaga.
    Allir skylduáfangar fyrstu þriggja anna (fyrri vetrar) búfræðináms.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öllum helstu verkþáttum sem vinna þarf á viðkomandi námsdvalarbúi á meðan á námsdvöl stendur.
    • mikilvægi þess að færa dagbók á meðan á námsdvöl stendur.
    • nauðsyn þess að skipuleggja tíma sinn vandlega til að komast yfir öll verkefni innan settra tímamarka.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sinna öllum helstu verkþáttum sem vinna þarf á viðkomandi námsdvalarbúi á námsdvalartímanum.
    • færa dagbók á meðan á námsdvöl stendur.
    • skipuleggja tíma sinn vandlega til að komast yfir öll verkefni innan settra tímamarka.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera meðvitaður um þá verkþætti sem unnir eru á viðkomandi námsdvalarbúi á námsdvalartímanum ...sem er metið með... samviskusemi, útsjónarsemi, verklagi, ábyrgð og verkskipulagi.
    • gera sér grein fyrir mikilvægi allrar skráningar, þ.m.t. dagbókar, í landbúnaðarframleiðslu ...sem er metið með... rökstuðningi og verkskipulagi.
    • gera sér grein fyrir mikilvægi þess að skipuleggja tíma sinn vandlega ...sem er metið með... rökstuðningi og verkskipulagi.
    Vinnuskýrsla og dagbók.