Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464175285.82

    Franska 3 (MMB og FB)
    FRAN1CC05(MA)
    49
    franska
    Franska 3
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    MA
    Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Nemendur eru þjálfaðir í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Nemendur auka orðaforða sinn og þjálfast í nýjum málfræðiatriðum með hliðsjón af færnimarkmiðum áfangans. Að mestu er lokið við að fara yfir grundvallarþætti fransks málkerfis. Frásagnir í nútíð og þátíð eru æfðar munnlega og skriflega. Sem fyrr eru nemendur hvattir til sjálfstæðra vinnubragða og að þeir nýti sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið, við upplýsingaöflun. Samhliða vinnu með aðalkennslubók lesa nemendur einfalda skáldsögu.
    Franska 2
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum þrepsins
    • helstu grunnatriðum fransks málkerfis
    • menningu, helstu samskiptavenjum og siðum þjóðanna
    • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli og vera meðvitaðri en áður um muninn á ólíkum málsniðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfð málefni sem hann þekkir til þar sem talað er skýrt og greinilega
    • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
    • geta aflað sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga
    • geta spurt og svarað spurningum um atburði í nútíð og þátíð
    • skrifa frásagnir um ýmis efni, t.d. ferðasögu, daglegt líf og endurminningu
    • skilja texta um almennt og sérhæfð efni sem fjallað er um í áfanganum
    • ræða við aðra um daglegt líf sitt, liðna atburði og áform.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita viðeigandi aðferðum við lestur eftir því hver tilgangurinn er hverju sinni
    • afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
    • tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og geta dregið ályktanir af því sem hann les
    • geta beitt mismunandi málsniðum
    • gera stuttan útdrátt úr frásögn, t.d. bókmenntatexta eða blaðagrein
    • segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
    • miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
    • skipuleggja nám og námsaðferðir við hæfi
    • nýta þekkingu og leikni til að leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • meta eigið vinnuframlag og framfarir í áfanganum.
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.