Nemandinn þekkir nú grunnaðferðir á bak við mótun hárs með hverskonar tækjum og tólum. Unnið er áfram með þjálfun á rúlluísetningu og úrgreiðslu auk klípu- og blautbylgja í fleiri útfærslum s.s. bylgjur með hliðarskiptingu og beint aftur.
Blástur er þjálfaður í dömur og herra, unnið er með ólík form og hárlengdir.
Sýndar eru fléttur, snúningar og gerð hnúta í síðu hári og það útfært og æft.
Áfram er unnið með notkun og gerð verklýsinga.
Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.
HÁRG1GB02AH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þremur mismunandi formum á ísetningum og greiðslum, svo sem beint aftur, stjörnu- og múrsteinaupprúllum.
viðeigandi hársnyrtiefnum og áhöldum við ísetningu og greiðslu.
gerð og notkun verklýsinga fyrir hárgreiðslu.
mismunandi formum á bylgjugreiðslum.
notkun bylgjugreiðu og klípa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipta hárinu upp í fyrirfram ákveðnar brautir.
setja ýmsar stærðir af rúllum í misjafna sídd af hári.
túbera og greiða úr mismunandi upprúllum á æfingahöfðum.
greiða fjórar blautbylgjur upp frá einni ásamt þurrkun og úrgreiðslu.
gera klípuupprúll á æfingahöfði þannig að út komi fjórar bylgjur ásamt þurrkun og úrgreiðslu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipta, rúlla upp og forma hár með hliðsjón af útkomu, uppbyggingu og áferð greiðslu.