Nemandi þjálfast í að hanna og útfæra hárgreiðslur miðað við mismunandi hárlengdir sem hæfa viðskiptavini við ýmis tækifæri, bæði dag- og kvöldgreiðslur með hjálp verklýsinga , hitajárna og mótunarvara.
Nemandinn kynnist mismunandi tímabilum í sögu hárgreiðslu og lærir að útfæra greiðslur eftir ljósmyndum auk þess sem samfélagsmiðlar eru notaðir til hugmyndarvinnu.
Verkefnin unnin á æfingarhöfuð og módel.
HÁRG2GB03CH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsu upprúlli og úrgreiðslum miðað við fyrirhugaða útkomu.
mismunandi stíl og stílbrigðum á hárgreiðslum.
áhöldum og efnum sem notuð eru við hárgreiðslur.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útfæra greiðslur í mismunandi hárlengdir.
móta hár með rúllum, járnum, nálum og klípum.
nota viðeigandi hárskraut.
útfæra mismunandi bylgju- og tímabilagreiðslur.
móta blautbylgjur í mismunandi útfærslum.
nota samfélagsmiðla til hugmyndarvinnu og kynninga.
vinna samkvæmt verklýsingu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útfæra ólíkar greiðslur fyrir mismunandi hárgerðir og –lengdir.
nota verklýsingar sem hjálpartæki í hárgreiðslu.
kynna hugmyndir sínar á ýmsa vegu
ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.