Saga og áhrif auglýsinga kynnt. Fjallað er um sálfræðilegar kenningar á bak við auglýsingar og áróður, t.d. auglýsingatækni, skynferlin, skynvillur, markaðssetningu, neðanmarkarskynjun og hvernig er hægt að hafa áhrif á okkur með að beita þekkingu á þessum sviðum. Reynt er að gera nemendum grein fyrir umfangi og áhrifum auglýsinga og áróðurs á hegðun og viðhorf neytenda. Leiðir til að ná athygli neytandans og auglýsingabrellur eru sérstaklega skoðaðar og greindar á ýmsan hátt með það að markmiði að gera nemendur meðvitaða um hvernig markaðsöflin hafa áhrif á hegðun neytenda.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim aðferðum sem eru notaðar í auglýsingum til að ná athygli neytenda
þeim aðferðum sem notaðar eru í auglýsingum til að hafa áhrif á hegðun neytenda
umfangi auglýsinga
kenningum um áróður
kenningum um þarfir og hvatir, kynhlutverk, staðalmyndir, skynjun, neðanmarkarskynjun og fleira
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
koma upplýsingum á framfæri í gegnum auglýsingar
búa til auglýsingar
greina og varast helstu brellur sem notaðar eru í auglýsingum
beita helstu stefnum og kenningum innan auglýsingasálfræðinnar
lesa út úr og skilja helstu rannsóknarniðurstöður á þessu sviði
greina og þekkja helstu brellur og brögð sem notuð eru til að ná athygli neytenda og hafa áhrif á hegðun þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á hvernig auglýsingar hafa áhrif þannig að nemandi sé meðvitaður og geti varið sig betur gegn þeim
gera sér grein fyrir hvernig er reynt að hafa áhrif á okkar daglegu hegðun og viðhorf með áróðri og auglýsingum og getað komið þessari þekkingu á framfæri við aðra
leggja mat á dæmi um auglýsingar út frá fræðunum
átta sig á duldum boðskap í almennri fjölmiðlaumfjöllun
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.