Áfanginn miðar að því að nemandinn efli næmi sitt fyrir fjarvídd og myndbyggingu á tvívíðum fleti og dýpki skilning á grundvallaratriðum myndbyggingar, formfræði og hönnunar. Í áfanganum er skynjun á formum í umhverfinu efld og þrívíð tilfinning skerpt. Nemandinn gerir tilraunir með form, línur, fleti og áferð til að rannsaka ólíka myndbyggingu og læra undurstöðuatriði í fjarvíddarteikningu þar sem umhverfið er skoðað og útfært í fjarvídd. Áhersla lögð á að nemandinn prófi og kynnist mismunandi miðlum í vinnslu myndverka.
SJÓN1LF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forsendum myndbyggingar og fjarvíddar
grundvallarreglum formfræði og fjarvíddar
hlutverki forma, lína, lita og áferðar í myndverkum
hvaða merkingu og áhrif ólík form og línur hafa í myndverki
hvernig mismunandi miðlar og aðferðir hafa áhrif á útkomu myndverks
hvernig myndbygging hefur áhrif á útkomu myndverks
fagorðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna hluti í réttum hlutföllum í fjarvídd í einum, tveimur og þremur hvarfpunktum
skyggja hluti út frá ákveðnu ljóshorni
nota myndbyggingu, formfræði og fjarvídd í myndverki til að ná ákveðnum áhrifum þannig að gott jafnvægi sé milli einstakra þátta
vinna með mismunandi miðla og nota mismunandi aðferðir við gerð myndverka
skilgreina verk sín og tengja þau við fagorð og fjalla um þau
útfæra og setja fram verkefni sín á frumlegan, skapandi og skipulegan máta
beita táknfræðilegum rökum við umræðu um mögulega merkingu óhlutbundinna mynda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta formfræði, fjarvídd og myndbyggingu í sköpun myndverka
vinna á persónulegan hátt og þróa eigin hugmyndir
fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt með vísan í grundvallaratriði myndbyggingar og fjarvíddar
meta myndbyggingarlega þætti í myndverkum annarra, t.d. fjölmiðlaefni, kvikmyndir, listaverk o.fl
Námsmat skal vera fjölbreytt og byggja á verkefnavinnu með áherslu á leiðsagnarmat.