Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464353677.02

    Starfsnám með áherslu á atvinnuþátttöku
    STAR1VI05
    6
    Starfsumhverfi og vinnustaðakynning
    Starfsumhverfi, atvinnulíf, menningarstofnanir, skapandi greinar, vettvangsheimsóknir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áhersla verður á að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnámið fer fram á völdum vinnustöðum og er hugsað sem undirbúingur fyrir starfsþáttöku nemenda. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður oft skýrari.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Fjölbreyttum vinnustöðum
    • Að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
    • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
    • Þeim hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita fjölbreyttu verklagi
    • Vinna eftir skipulagi
    • Mæta til vinnu á réttum tíma
    • Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
    • Fylgja samskiptareglum á vinnustað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í atvinnulífinu
    • Vinna verkefni sjálfstætt eða eftir leiðsögn
    • Hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
    • Biðja um aðstoð ef þess þarf
    • Tilheyra starfsmannahópi
    Námsmatið gert í samvinnu við vinnustaðina og felst í leiðsagnarmati.