Nemandinn fær þjálfun í klippingum á æfingahöfði, öðlast grunnþekkingu á formklippingu (herra) og aukna þekkingu á jafnsíðu formi, fláa, auknum styttum, jöfnum styttum og þynningu. Kynnt er vinna með klippivélum með mismunandi kömbum og mismunandi aðferðir við þynningu í hári.
Nemandinn dýpkar skilning sinn og færni í gerð verklýsinga og nýtingu þeirra.
HKLI1GB03AH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
notkun og umhirðu klippivéla.
notkun og gerð verklýsinga.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
klippa hnakka og hliðartopp snöggt með vél og skærum.
klippa formklippingu á æfingahöfði samkvæmt kennslukerfi.
klippa dömu- og herraklippingar samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði.
gera verklýsingar fyrir dömu og herraklippingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.