Nemandinn fær þjálfun í herraklippingum á æfingarhöfði og módeli. Lögð er áhersla á form-, tísku- og snöggar herraklippingar og notkun hármótunarefna. Unnið er með klippivélum með mismunandi kömbum, þjálfuð færni í að eyða út hnakkalínu með greiðu og skærum og farið í þynningu með skærum og hníf. Verkefnin eru unnin á æfingahöfði og módelum.
HKLI2GB03CH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
mismunandi formum í herraklippingum.
notkun hármótunarvara.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
klippa snöggt með vél og skærum.
þynna hár með hníf og þynningarskærum.
klippa formklippingu á æfingarhöfði og módeli út frá verklýsingu.
klippa herraklippingu (enskt form) samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði og módeli.
klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.
klippa módel samkvæmt óskum þess.
klippa snögga herraklippingu sem þynnist niður í hnakka.
klippa formklippingu.
vinna út frá verklýsingu.
ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.