Nemandinn lærir um hönnun og hlutföll við klippingar og greiðslur og um samskipti við viðskiptavininn.
Farið er í litunarfræði, litastjörnuna, litanúmer og nöfn auk efnafræði hárlitunar- og permanentefna. Kynntar eru leiðir til sjálfbærni í hársnytiiðn og vistvænar vörur kynntar. Nemandinn lærir að greina mismunandi hárgerðir og hárskaða. Ýmis lykilorð við lestur leiðbeininga með hársnyrtiefnum á erlendum tungumálum eru skoðuð auk enskra fagorða. Unnið er með form, áferð, lögun og skoðaðar skilgreiningar hugtaka sem tengjast hárinu auk þess sem leitast er við að efla skilning nemenda á gerð og notkun verklýsinga. Lögð er áhersla á mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.
Nemendur gera ferilskrá og fræðast um atvinnuviðtöl.
IÐNF1GB04AH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi litategundum og styrkleikum þeirra.
litastjörnunni, heitum og köldum litum, hvað andstæðir litir gera.
efnafræði permanents og hárlitar og umgengni við hárefni.
uppbyggingu hárs og áhrif efna á það.
réttri líkamsbeitingu.
helstu fagorðum sem tengjast hárinu á íslensku og ensku.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina ástand hárs, líkamsform og andlitsfall og áhrif þess á möguleika á vali hársnyrtingar.
lesa leiðbeiningar og notkunarreglur efna á ensku.
nota litastjörnuna og lesa úr litaspjöldum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
umgangast efni af virðingu og með varúð.
vinna með liti og permanentefni og nota þau hjálpargögn sem bjóðast.