Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465308932.15

    Íslenska - Bókmenntir fyrri alda, framsögn og ritun
    ÍSLE3BF05
    157
    íslenska
    bókmenntir fyrri alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður meginviðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda. Nemendur fá æfingu í framsögn og málefnalegum flutningi. Lögð verður áhersla á að nemendur geti beitt gagnrýni við ritun og nýtt sér gagnrýni annarra á uppbyggilegan hátt. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.
    ÍSL2MG05 Fornar bókmenntir og málsaga eða 10 einingar á öðru þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem nægir til skilnings eldri íslenskra bókmenntaverka
    • máleinkennum sem nýtast í ræðu og riti
    • ritgerðasmíð og heimildavinnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreyttar gerðir ritaðs máls fyrri alda
    • flytja af öryggi og sannfæringu vel upp byggða ræðu eða kynningu
    • nota viðeigandi stílbrögð og orðatiltæki í tal- og ritmáli
    • nýta sér gagnrýni annarra við eigin framsetningu
    • rita og ganga frá heimildaverkum og hvers konar textum á viðeigandi hátt
    • meta áreiðanleika heimilda
    • beita helstu bókmenntahugtökum á lesna texta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu texta
    • setja fram rökstudda afstöðu og útskýra sjónarmið í málefnalegum umræðum
    • beita málinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti
    • efla og meta eigin málfærni
    • skrifa skýran og vel upp byggðan texta
    • sýna sköpunarhæfni í málflutningi sínum og verkum
    Námsmat byggir á leiðsagnarmati þar sem nemandinn fær endurgjöf á það sem vel er gert ásamt ábendingum um það sem betur má fara. Við námsmatið er nýtt kennaramat, sjálfsmat og jafningjamat. Leitast er við að hafa námsmat sem fjölbreyttast til þess að sýna rétta mynd af þekkingu, leikni og hæfni nemenda.