Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465309142.7

    Íslenska - Skapandi skrif
    ÍSLE3RS05
    161
    íslenska
    Skapandi skrif
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur æfist í ritun skapandi verka. Einnig munu þeir æfast í að lesa yfir eigin verk, gagnrýna og taka gagnrýni. Umræður um skoðanir og rök fyrir þeim verður mikilvægur þáttur í áfanganum.
    ÍSLE3BS05 Bókmenntir síðari alda, túlkun og tjáning eða 10 einingar á þriðja þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einkennum íslensks máls sem nýtast við ritun
    • uppbyggingu mismunandi textaforma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka við gagnrýni á eigin verk og vinna úr henni
    • beita öguðum og markvissum vinnubrögðum í ferilsritun
    • skilja og nota viðeigandi stílbrögð og menningarlegar vísanir í ritmáli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
    • sýna víðsýni og sköpunarhæfni í umfjöllun sinni og verkum
    • efla hæfni sína til skapandi skrifa og öðlist trú á eigin getu
    • skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og valið ritstíl eftir aðstæðum
    Námsmat byggir á leiðsagnarmati þar sem nemandinn fær endurgjöf á það sem vel er gert ásamt ábendingum um það sem betur má fara. Við námsmatið er nýtt kennaramat, sjálfsmat og jafningjamat. Leitast er við að hafa námsmat sem fjölbreyttast til þess að sýna rétta mynd af þekkingu, leikni og hæfni nemenda.