Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Stærðfræði - undirbúningsáfangi á framhaldsskólabraut
fornámsáfangi
Undirbúningur fyrir fyrsta áfanga í stærðfræði. Undirstöðu reikniaðgerðir, almenn brot, bókstafareikningur, jöfnur og veldi.
D eða lægra úr grunnskóla
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðu reikniaðgerðum
- reglum um forgangsröðun aðgerða
- reikningi með almennum brotum
- bókstafareikningi
- einföldum jöfnum og veldareikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með undirstöðu reikniaðgerðir við lausn verkefna
- beita forgangsröðun aðgerða í einföldum dæmum
- þekkja algeng stærðfræðitákn og túlka þau í mæltu máli
- vinna með almenn brot, jöfnur og veldi
- vinna með óþekktar stærðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna skipulega að lausnum á dæmum
- vinna sjálfstætt með aðferðir í stærðfræði
- skiptast á skoðunum við aðra um aðferðir til að leysa fjölbreytt dæmi
- leysa jöfnur með óþekktri stærð