Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465377604.8

    Lita- og formfræði
    SJÓN1LF05
    7
    sjónlistir
    formfræði, litafræði, myndbygging
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum kynnist nemandinn lögmálum myndbyggingar og rannsakar hvernig eðli myndflatar breytist eftir því á hvaða hátt línur og form skipta honum upp. Nemandinn þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð með það að markmiði að ná fram mismunandi áhrifum á tvívíðan flöt en einnig í þrívídd. Grundvallaratriði í meðferð lita eru einnig viðfangsefni áfangans og kannar nemandinn samspil þeirra, virkni og áhrif. Nemandinn þjálfast í að blanda liti og beita þeim á markvissan hátt. Hann þjálfast í notkun margvíslegra efna og áhalda við rannsóknir sínar. Nemandinn kynnist verkum nokkurra listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Samhliða henni þjálfast hann einnig í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum í lita og formfræði
    • ólíkum áhrifum lína og forma á mismundandi stöðum í myndfleti
    • mismunandi áhrifum og vægi lita
    • blöndun og beitingu ljós- og efnislita
    • klassískum fegurðarlögmálum og notkun þeirra í myndlist, hönnun og byggingarlist
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita litum og formum til að ná fram mismunandi áhrifum
    • nota grunnhugtök í lita og formfræði
    • nota mismunandi efni og blanda liti
    • nota verk nokkurra myndlistamanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin vinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • rannsaka óhlutbundna myndbyggingu
    • nýta grundvallaratriði í myndbyggingu, lita og formfræði til að tjá eigin hugmyndir
    • rökstyðja skoðanir sínar um málefni sem tengjast mismunandi merkingu lita, forma og efnis
    • nýta og meðhöndla mismunandi efnistegundir bæði í tvívíðum og þrívíðum verkum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Í skólanum er unnið með leiðsagnarnám.