Nemandi nýtir sér áunna þekkingu í teikningu, lita- og formfræði í þrívíddarsköpun með mismunandi efnum og aðferðum á gínuhaus. Kynntar mismunandi uppsetningar á stemningsmyndum (moodboard) til glöggvunar á stíl og tíðaranda. Þjálfuð hugmyndavinna og framsetning á útfærslu fyrir eigin hársnyrtistofu, umhverfi hennar, vörur og þjónustu. Kynnt mismunandi forrit og aðferðir í stafrænni myndvinnslu. Áhersla lögð á að nemandi kynni og verji verkefni sem hann vinnur í áfanganum.
ITEI1GB05AH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
formsköpun í þrívídd á höfði gínuhauss.
stemningsmyndum (moodboard) til skýringar á hugmyndavinnu.
þróunar- og hugmyndavinnu sem og skipulagningu við að stofnsetja eigin stofu.
mismunandi forritum í stafrænni myndvinnslu.
mikilvægi þess að kynna og svara fyrir eigin verk og hugmyndir.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sýna og skapa formhönnun í þrívídd.
setja saman skýrar táknrænar myndir af eigin hugmyndavinnu.
tengja saman hugmyndaferli að eigin stofu frá upphafi til endanlegrar niðurstöðu.
velja rétt forrit til að ná fram sem bestum eiginleikum í stafrænni myndvinnslu á hverjum tíma.
leggja fram, kynna og verja eigin verkefni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota mismunandi aðferðir til að skapa og hanna ýmsar þrívíddar útgáfur sköpunar á gínuhaus.
sýna og kynna hugmynd að eigin stofu og þeim þáttum sem tengjast henni.
taka eigin myndir (eða annarra) og breyta þeim sem best má vera og nýta þær til kynningar á fjölbreyttan hátt.