Enska - Vísindaskáldskapur, fantasíur og hrollvekjur í gegnum kvikmyndum, myndasögum og skáldsögum.
ENSK3KB05
140
enska
Kvikmyndir, bókmenntir
Samþykkt af skóla
3
5
Nemendur fá að kynnast vísindaskáldskap, fantasíum og hrollvekjum í gegnum kvikmyndir, myndasögur og skáldsögur.
Nemandi þarf að hafa lokið 5 einingum á öðru þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Orðaforða sem gerir þeim kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi, hefðum sem eiga við um talað og ritað mál t.d. mismunandi málsnið.
Helstu hefðum í uppsetningu og skipulagi ritaðs máls.
Enskri menningu og enskri tungu sem og menningu í öðrum enskumælandi samfélögum
Að flytja ræður og geta tjáð sig sómasamlega um ákveðið efni á ensku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lestri, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gerir miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð.
Að skilja vel sérhæfða texta á sviði sem hann þekkir.
Að skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram.
Að geta tjáð sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á.
Skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni.
Geta lagt gagnrýnið mat á texta.
Hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýnan hátt.
Geta flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð.
Beita rithefðum sem eiga við í textasmíð.
Vinna rétt með heimildir.
Skrifa gagnorða, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta.
Notast er við fjölbreytt námsmat sem tekur mið af þekkingu, leikni og hæfni nemandans. Leiðsagnarmat/Símat