Í vinnustaðanámi öðlast nemandinn aukna færni, reynslu og leikni í þjónustu við viðskiptavini, þjálfast í verktækni, hraða og faglegum vinnubrögðum við raunverulegar starfsaðstæður undir handleiðslu hársnyrtimeistara. Hann þjálfar með sér færni til samvinnu auk þess að vinna sjálfstætt og tilheyra hóp. Hann þjálfast í vinnu undir álagi. Lærir að þekkja mismunandi vörur og öðlast þekkingu á vörusölu.
VINS2FB06BH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnustaðamenningu.
samvinnu á vinnustað.
skipulagningu og verkfærni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að þjónusta viðskiptavini.
auknum hraða og verktækni við almenna hársnyrtingu.
vörusölu og ráðlegginga til viðskiptavina.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna vel og faglega með öðrum á vinnustaðnum.
skipuleggja bókanir fram í tímann.
veita almenna hársnyrtingu til viðskiptavina undir handleiðslu meistara.
ráðleggja viðskiptavinum um vörur sem henta til heimanota.