Starfsnámið fer fram á völdum vinnustöðum og er hugsað sem enn frekari undirbúningur fyrir starfsþáttöku nemenda. Áhersla verður á að nemendur kynnist enn betur einum til tveimur vinnustöðum að eigin vali. Nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi á vinnustöðum.
STAR 1 VI 05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnustöðum af eigin vali
að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
þeim hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
mikilvægi ástundunar og mætingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita fjölbreyttu verklagi
vinna eftir skipulagi
mæta til vinnu á réttum tíma
fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
fylgja samskiptareglum á vinnustað
fylgja öryggisreglum á vinnustað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í atvinnulífinu
vinna verkefni sjálfstætt eða eftir leiðsögn
hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
biðja um aðstoð á vinnustað ef þess þarf
tilheyra starfsmannahópi
sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu
stunda vinnu
Námsmatið felst í leiðsagnarmati og er gert í samvinnu við vinnustaðina.